Yfirlit
Notaðu þennan gátlista þegar þú yfirferð skemaskrá fyrir magnupphleðslu áður en þú hleður henni upp í Ads Manager. Hann hjálpar þér að finna villur í sniði og gildum skráarinnar áður en þú hleður henni upp.
Herferðaflipi
Allir áskildir reitir fyrir herferðir eru útfylltir.
Nöfn herferða eru einkvæm.
Markmið herferðar er áhorf, smellir eða viðskipti. Herferðir sem miða að viðskiptum krefjast þess að tilboð byggð á viðskiptum séu virk á auglýsingareikningnum og að nákvæmlega eitt auðkenni stillingar fyrir viðskiptaatburð sé tilgreint í JSON-fylki. Herferðir sem nota vörugagnastraum geta ekki haft viðskipti að markmiði í magnupphleðslu.
Dagsetningar herferða eru gildar og á réttu sniði (YYYY-MM-DD). Upphafs- og lokadagsetningar miðast báðar við kl. 00:00:00 UTC í upphafi viðkomandi dags. Lokadagsetningin nær ekki yfir það sem eftir er dagsins. Til að herferð standi til loka 10. október skaltu til dæmis stilla lokadagsetninguna á 2026-10-11.
Reitir fyrir kostnaðarhámark eru útfylltir.
Landareiturinn er útfylltur og á JSON-sniði.
Engin herðferðarnöfn eru tvítekin.
Auglýsingareikningurinn inniheldur ekki fleiri en 5.000 herferðir. Þetta er hámark á hvern reikning.
Flipi fyrir auglýsingahópa
Allir áskildir reitir fyrir auglýsingahópa eru útfylltir.
Nöfn auglýsingahópa eru einkvæm.
Hver auglýsingahópur er tengdur við rétta herferð.
Nöfn herferða eru nákvæmlega eins á herferðaflipanum og flipanum fyrir auglýsingahópa.
Samhengisvísbendingar eru á JSON-sniði, svo sem ["hint1", "hint2"].
Engin nöfn auglýsingahópa eru tvítekin.
Auglýsingareikningurinn inniheldur ekki fleiri en 5.000 auglýsingahópa. Þetta er hámark á hvern reikning.
Auglýsingaflipi
Allir áskildir reitir fyrir auglýsingar eru útfylltir.
Nöfn auglýsingahópa eru nákvæmlega eins á flipanum fyrir auglýsingahópa og auglýsingaflipanum.
Fyrirsagnir auglýsinga eru innan stafafjöldamarka (mælt er með 16–24 stöfum; hámark 50 stafir).
Auglýsingatexti er innan stafafjöldamarka (mælt er með 32–48 stöfum; hámark 100 stafir).
Vefslóðir lendingarsíðna eru gildar og aðgengilegar.
Myndaslóðir eru aðgengilegar öllum og opna myndina beint í vafranum.
Myndir eru hýstar með studdum aðferðum, svo sem Google Drive-tenglum, tenglum á myndir hýstar hjá AWS, til dæmis í S3 eða CloudFront, eða tenglum á myndir sem auglýsandinn hýsir á eigin léni eða efnisdreifikerfi (CDN).
Myndir eru á PNG- eða JPG-sniði, ferningslaga og ekki stærri en 1200 x 1200 mynddílar.
Auglýsingareikningurinn inniheldur ekki fleiri en 5.000 auglýsingar. Þetta er hámark á hvern reikning.
Yfirferð á sniði
Haltu línunni með dálkanöfnunum á hverjum flipa sniðmátsins. Þú getur bætt við athugasemdalínum fyrir ofan hana og fjarlægt eða fært línur með leiðbeiningum eða dæmum úr sniðmátinu. Ads Manager hunsar línur með leiðbeiningum og dæmum úr sniðmátinu við sannprófun upphleðslunnar.
Fliparnir heita enn campaigns, ad groups og ads.
Dálkahausum hefur ekki verið gefið nýtt nafn.
Hver lína á hverjum flipa verður að standa fyrir eina tiltekna herferð, auglýsingahóp eða auglýsingu, án tvítekinna lína fyrir sama hlut.
Engir reitir eru sameinaðir.
Nöfn herferða og auglýsingahópa eru alls staðar eins þar sem þau koma fyrir.
Sértilvik við magnupphleðslu
Er ég að uppfæra fyrirliggjandi hlut eða búa til nýjan?
Línur með auðkennum fyrirliggjandi herferða, auglýsingahópa eða auglýsinga uppfæra þá hluti. Línur fyrir nýja auglýsingahópa eða auglýsingar ættu að innihalda rétt auðkenni yfirhlutar. Auðkennisreitur nýja hlutarins á að vera auður svo Ads Manager geti búið hann til.
Hvernig er öruggast að undirbúa magnbreytingar?
Byrjaðu á að velja „Flytja út til breytinga“ þegar því verður við komið. Nýútflutt skrá inniheldur núverandi auðkenni og reitagildi. Það dregur úr hættu á að línur verði óvart tvíteknar, úrelt auðkenni verði notuð eða skrifað verði yfir gögn. Sjá Breyta herferðum fyrir leiðbeiningar um útflutning til breytinga.
Eru samhengisvísbendingar sameinaðar fyrirliggjandi lista?
Nei. Samhengisvísbendingarnar í línu auglýsingahóps sem þú hleður upp eiga að vera allar þær vísbendingar sem þú vilt að hópurinn noti eftir upphleðsluna. Láttu allan JSON-listann fylgja, ekki bara nýju vísbendingarnar sem þú vilt bæta við.
Get ég notað tengla á myndir sem eru ekki aðgengilegar?
Nei. Myndaslóðir verða að vera aðgengilegar öllum og opna myndina beint í vafra. Ef myndin krefst innskráningar, slóðin vísar á forskoðunarsíðu, aðgangur vefskriðla er lokaður eða eldveggur eða CDN-regla hindrar aðgang, getur upphleðslan fallið á sannprófun eða yfirferð.
Hvað ætti ég að athuga ef slóð á lendingarsíðu eða mynd stenst ekki sannprófun?
Gakktu úr skugga um að slóðin hlaðist án auðkenningar, skili svari sem staðfestir að beiðnin hafi tekist og sé aðgengileg vefskriðlum OpenAI. Sjá Leiðbeiningar fyrir auglýsendur um að heimila aðgang vefskriðla OpenAI fyrir nánari leiðbeiningar um vefskriðla.
